@icewear.garn: Hér er uppskrift að sjúklega einföldu og fallegu ponsjói😍✨ Það sem þið þurfið: 4 dokkur af Mohair Mix frá Icewear Garn (bara 3 ef þú sleppir kant) Hringprjónn nr 5,5, best að hann sé 80cm eða lengri Heklunál nr 5 (ef þú ætlar að hekla kant) Nál til að sauma saman og fyrir frágang Uppskrift: Fitjið upp 70 lykkjur af einföldum þræði af Mohair Mix á prjóna nr 5,5. Prjónið slétt á réttunni og brugðið á röngunni þar til þið klárið tæplega 3 dokkur (ca 160cm) - ef þið sleppið kanti þarf að passa að það sé nóg eftir á dokkunni til að fella af og sauman saman. Fellið lauslega af. Brjótið stykkið í tvennt og saumið aðra hliðina en skiljið eftir 30 cm gat fyrir hálsmálið. Gangið frá endum. Heklið/prjónið sætan kant bæði í hálsmálinu og meðfram kantinum (þessu má sleppa!). Þvoið síðan ponsjóið með ullarsápu og leggið það flatt til þerris. Endilega taggaðu okkur ef þú prófar uppskriftina😍❤️ #fyrirþig #prjónatok #iceweargarn